
Aðferðir-Fyrirkomulag
Kennsla og kennsluhættir
• Nám í skólahljómsveitum er tvíþætt
a. Virk þátttaka í A, B eða C sveitum eftir aldri og færni nemenda.
b. Auk þátttöku í hljómsveitaræfingum á hver nemandi kost á hljóðfærakennslu í 40-60 mínútur á viku eftir aldri og kunnáttu.
• Hljóðfærakennsla fer eftir atvikum fram á skólatíma eða eftirá. Skipulag kennslustunda á skólatíma er í samráði við skólastjóra, viðkomandi grunnskólakennara og með samþykki forráðamanna.
• Hljóðfæranám byggir að stórum hluta á heimaæfingum. Því er nauðsynlegt að nemendur hafi aðstöðu og njóti stuðnings heima fyrir.
Námsmat
• Námsmat fer fram a.m.k. einu sinni á ári samkvæmt starfsáætlun skólahljómsveita.
• Felst það í:
a. Ársprófi skólahljómsveita eða grunn-/miðprófi tónlistarskóla eftir því sem við á.
b. Umsögn og/eða einkunn kennara og stjórnanda um ástundun nemanda.
(Unnið á sameiginlegum starfsdegi kennara skólahljómsveita 2. apríl 2013)